Veiðifélagið Flóki
Verkefni félagsins er að viðhalda góðri fiskgengd á félagssvæðinu og stuðla að sjálfbærri nýtingu fiskstofna.

Bændadagar 2026
Neðra svæði: 7.júlí – 9.júlí 2026 þriðjudaginn 7. júlí, e.hádegi – fimmtudagsins 9. júlí, f.h. Skráning á bændadaga: – Sækja þarf um stangir til leigutaka á netfangið (stefanlogi@simnet.is) sem allra fyrst – eða hafa samband í síma 893 9597. Efra svæði: 7.júlí – 9.júlí 2026 þriðjudaginn 7. júlí, e.hádegi – fimmtudagsins

Samantekt veiðidagbóka 2025
Unnin upp úr rafrænum veiðidagbókum Við höfum nú birt veiðiskýrslu ársins 2025, sem unnin er upp úr rafrænum veiðidagbókum svæðanna, á heimasíðu félagsins. Skýrslan gefur ítarlega yfirsýn yfir veiði á efra og neðra svæði Flókadalsár og er mikilvægur grunnur fyrir mat á stöðu og þróun veiðinnar. Skoða umfjöllun um veiðiskýrslu

Minnum á Aðalfund Veiðifélagsins Flóka
Aðalfundur Veiðifélagsins Flóka verður haldinn 14. maí 2026 kl. 13:00 í félagsheimilinu Ketilás Stjórn félagsins hvetur alla félagsmenn og landeigendur til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum um málefni árinnar og starfsemi félagsins. Virk þátttaka félagsmanna er mikilvæg til að tryggja góða samstöðu um stjórnun veiðinnar og
Helstu fréttir
Flókadalur
Flókadalur í Fljótum er rómaður fyrir sína náttúrufegurð og ríkulegu veiði í Flókadalsá. Dalurinn dregur nafn sitt af landnámsmanninum Hrafna-Flóka, sem þar nam land á 9. öld. Flókadalur var eitt helsta svæðið sem Hrafna-Flóki dvaldi á eftir að hann kom til Íslands, og minjar um hann og hans för má enn finna í örnefnum og sögnum. Í dag er Flókadalur griðastaður fyrir veiðimenn og unnendur ósnortinnar náttúru, þar sem rólegir dalir og tært rennandi vatn bjóða upp á einstaka upplifun.